Fara beint í efni
Brettakantar.is

Fyrirtækið

Fyrirtækið byrjaði starfsemi sína 1. maí 1978 og var tilgangurinn upphaflega bílainnréttingar og framleiðsla á sætum í bíla, aðallega í fólksflutningabíla og jeppa.

Upphaf brettakantasmíði hjá fyrirtækinu var, að á markaðinn vantaði brettakanta (fender flares) á „Gamla“ Bronco fyrir stærri dekk (þetta var árið 1983). Beiðni um það kom frá Bronco-eiganda, sem var þegar kominn á stærri dekk en kantar voru til fyrir. Fengnir voru kantar, þeir lengdir og breikkaðir, tekin af þeim mót og öðrum gefinn kostur á, en mikill og vaxandi áhugi á jeppabreytingum var þá þegar fyrir hendi.

Síðan vatt þetta upp á sig, og í dag eru til mót fyrir hinar ýmsu gerðir og fer fjölgandi.

Árið 2002 var fyrirtækið gert að einkahlutafélagi undir nafninu „Gunnar Ingvi – Bílasmiðja ehf.“

Í dag er fyrirtækið staðsett að Vagnhöfða 16, 110 Reykjavík.

Áfangar

  1. 1978Fyrirtækið hefur starfsemi
  2. 1983Fyrstu brettakantarnir
  3. 2002Verður einkahlutafélag (ehf.)